Böðull krefst bóta vegna afnáms dauðarefsingar!

Atvinnuvegaráðherra hefur boðað frumvarp í febrúar um hvalveiðum og ítrekað gefið til kynna að með því verði bundinn endir á veiðarnar. Framkvæmdastjóri Hvals hf. hefur svarað með því að félagið muni lögsækja ríkið og krefjast verulegra skaðabóta. Hótunin byggir á því að slíkt bann sé árás á atvinnufrelsi, sem verndað er í 75. grein stjórnarskrárinnar.
Ég fjallaði um spurninguna um hvort í banni gegn hvalveiðum fælist brot gegn atvinnufrelsi á hátíðarmálþingi Úlfljóts í Lögbergi í fyrri skömmu. Stutta svarið er að atvinnufrelsið stendur ekki í vegi fyrir banni. Lengra svarið skiptir meira máli, því það segir okkur hvernig bannið þarf að vera úr garði gert til að vel megi vera.
Greinin gerir sjálf ráð fyrir takmörkunum
Í 75. grein stjórnarskrárinnar segir að öllum sé frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Á eftir þessari setningu segir skýrt að þessu frelsi megi setja skörður með lögum, "enda krefjist almannahagsmunir þess". Atvinnufrelsi er fyrst og fremst ætlað að vernda rétt okkar til að velja okkur starf. Það hefur hins vegar aldrei falið í sér rétt til þess að tiltekin starfsemi verði leyfð um aldur og ævi.
Hæstiréttur hefur staðfest þetta, til dæmis í svokölluðum Vatneyrardómi sem féll árið 2000. Þar deilt um hvort kvótakerfið, sem margir telja sjálfa undirstöðu íslensks sjávarútvegs, fæli í sér skerðingu á atvinnufrelsi gagnvart þeim sjómönnum sem ekki hefðu kvóta en réru samt til veiða. Rétturinn taldi að það væri á valdi löggjafans að leggja mat á hvaða skipan á veiðum þjónaði almannahagsmunum.
Við höfum gert þetta áður
Nærtækasta fordæmið er bann við nektarsýningum. Saga þess er að sumu leyti svipuð sögu hvalveiðanna. Stjórnvöld sem vildu ekki leyfa starfsemina töldu sig ekki geta synjað um leyfi. Dómar féllu þar sem eigendur strippstaða sögðu á atvinnurétti sínum bortið og Alþingi tók að lokum ákvörðun sjálft og bannaði nektarsýningar fortakslaust með lögum árið 2010. Aðlögunartíminn var rúmir þrír mánuðir. Bannið stendur enn.
Erlendis er sagan sú sama. Bretar bönnuðu refaveiðar með hundum vegna þess að þær þóttu valda óþarflega mikilli þjáningu. Mannréttindadómstóll Evrópu, sem vísaði máli þeirra sem kvörtuðu vegna bannsins einróma frá og taldi breska löggjafanum hafa verið heimilt að setja bannið. Holland bannaði loðdýrarækt með ellefu ára aðlögunartíma, og Hæstiréttur Hollands taldi það standast. Mannréttindadómstóllinn staðfesti síðar þá túlkun. Nú í október fór Danmörk sömu leið og lagði á bann við loðdýrarækt og komst þannig í hóp 25 Evrópuþjóða sem bannað hafa þá tilteknu starfsemi á grundvelli sjónarmiða dýravelferðar. Við ákvörðunina sagði Christian Rabjerg Madsen, ráðherra náttúru- og dýravelferðarmála í Danmörku: „Atvinnugrein á ekki að halda áfram eingöngu vegna þess að hún hefur verið við lýði lengi. Hún þarf einnig að þjóna hagsmunum samfélagsins, efnahagslífsins og dýranna.“
En aftur að Íslandi.
Umboðsmaður sagði ekki að það mætti ekki banna hvalveiðar
Oft er vísað til álits umboðsmanns Alþingis frá 2024 um stöðvun veiðanna sumarið 2023 til stuðnings þess að bann á veiðunum sé ólögmætt. Umboðsmaður taldi stöðvunina ólögmæta. En niðurstaðan sneri að því hvernig og af hverjum ákvörðunin var tekin. Ráðherra frestaði veiðum með reglugerð einum degi fyrir vertíð, á grundvelli þess að Fagráð um velferð dýra hafði fullyrt að veiðar á stórhvelum gætu ekki samrýmst lögum um vernd dýra. Umboðsmaður taldi ákvörðun ráðherra um að stöðva veiðarnar með reglugerð ekki hafa mátt grundvallast á lögum um hvalveiðar þar sem þau lög tiltaka ekki sjónarmið um dýravernd sem heimild til takmörkunar, enda svo forn að þau tala um sektir í "gullkrónum". Þá taldi umboðsmaður að brotið hefði verið gegn meðalhófi þar sem ákvörðunin var tekin aðeins einum degi áður en fyrirhuguð vertíð átti að hefðast. Umboðsmaður tók þó skýrt fram í álitinu að að löggjafinn gæti hvenær sem er breytt lögunum.
Álitið er því ekki rök gegn banni, en gæti þess í stað nýst sem leiðarvísir: bann þarf að koma frá Alþingi, með góðum fyrirvara og með skýrt tilgreindu markmiði. Nú er fyrirvarinn nægur, því frumvarpið kemur fram í febrúar og næsta vertíð hefst ekki fyrr en sumarið 2027. Jafnframt hefur atvinnuvegaráðherra og sitjandi ríkisstjórn lýst því yfir með miklum fyrirvara að til standi að setja lögin svo nægur fyrirvari er fyrir hendi fyrir þá sem bannið beinist gegn til að bregðast við og eftir atvikum takmarka tjón sitt.
Hvað með bæturnar?
Ekkert í ákvæði stjórnarskrár um atvinnufrelsi bendir til þess að ákvörðun um að banna tiltekna starfsemi sé bótaskyld. Því hvílir hótun bótakröfu forsvarsmanna Hvals hf. í raun á eignarréttarákvæðinu í 72. grein eða samspili á milli greinanna tveggja. Hvort og að hvaða marki væntingar leyfishafa njóti verndar, er raunverulegt álitaefni sem vert að skoða vel.
Leyfisbréf Hvals hf. segir sína sögu. Þar segir að veiðarnar skuli uppfylla lög og reglur á hverjum tíma, þar á meðal lög um velferð dýra. Leyfið er þannig sjálft bundið við að reglurnar geti breyst. Í stöðluðum ráðningarsamningum sínum hefur Hvalur hf. auk þess árum saman haft ákvæði um að samningurinn falli niður ef stjórnvöld stöðva veiðarnar. Félagið hefur sjálft hefur því gert ráð fyrir þessari áhættu.
Svo þarf að sanna tjón. Í ágúst greindi framkvæmdastjóri Hvals hf. frá því að félagið hygðist í bili hætta að selja langreyðarkjöt til Japans og nýta það fremur í járnbætiefni. Tjón vegna markaðar sem er að hverfa er ekki tjón af völdum banns. Ítrekað hefur auk þess verið fjallað um það að hvalveiðar Hvals hf. hafa verið reknar með tapi, í stóra samhenginu, svo árum skiptir þrátt fyrir að hagnaður sé á félaginu vegna öflugs fjárfestingarsafns sem það býr yfir.
Dýravelferð eru almannahagsmunir
Alþingi hefur sett það markmið samfélagsins í lög að dýr skuli laus við óþarfa þjáningu. Fagráð um velferð dýra taldi árið 2023 að veiðiaðferð á langreyðum samrýmdist ekki því markmiði, og ekki væri fyrirséð að hægt væri að betrumbæta veiðarnar svo að þessu mikilvæga takmarki væri náð. Síðasta hvalveiðivertíð staðfestir það. Samkvæmt eftirlitsgögnum Matvælastofnunar drápust tveir af hverjum fimm vöktuðum hvölum ekki tafarlaust, og dauðastríð sumra stóð í meira en hálftíma. Vandinn er ekki veðrið, Watson eða veiðarfærin. Vandinn er aðgerðin sjálf, mannapar á í bátum geta einfaldlega ekki tryggt skjótan dauða risastórs spendýrs á hreyfingu á opnu Atlantshafi – og munu aldrei geta það.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur ítrekað viðurkenndi að vernd dýravelferðar gæti réttlætt takmörkun á öðrum réttindum. Hér má til dæmis vísa til dóms þar sem bann Belgíu á svokallaðari halal slátrun var talin réttlætanleg þrátt fyrir að hún skerti rétt tiltekins hóps til trúfrelsis. Sömuleiðis hefur dómstóllinn talið að bann gegn loðdýrarækt og refaveiðum hafi verið heimil, þrátt fyrir að teflt hafi verið fram sjónarmiðum um skerðingar á atvinnufrelsi af hálfu þeirra sem mótmæltu banninu.
Gerum það vel
Tímarnir breytast og lögin með. Það dytti fáum í hug í dag að böðull ætti bótarétt á ríkið vegna afnáms dauðarefsingar. Okkur þykir flestum sjálfsagt að sú starfsgrein hafi verið aflögð með hliðsjón af þróun okkar gilda. Dýravelferð er ekki bara fagurgali sem einhverjir hörhippar vilja umfaðma heldur raunverulegt lögverndað takmark íslensks samfélags. Það liggur fyrir að hvalveiðar samræmast ekki því takmarki og því er ekki ómálefnalegt að banna þessa tilteknu atvinnugrein svo lengi sem meðalhófs er gætt.
Til að bann standist þarf að mínu mati að huga sérstaklega að fimm atriðum: Í fyrsta lagi þarf lagafrumvarpið að tilgreina dýravelferð sem markmið laganna. Í öðru lagi þaf að samþykkja lögin fyrir næstu vertíð. Í þriðja stað þarf að taka skýra afstöðu til gildandi leyfa í lögunum. Í fjórða lagi mætti bjóða starfsfólki aðlögunarúrræði. Og í fimmta lagi ættu lögin að gilda um allar hvalveiðar í atvinnuskyni.
Stjórnarskráin felur Alþingi að meta almannahagsmuni. Það er nákvæmlega það sem Alþingi verður beðið um að gera í febrúar. Spurningin er ekki lengur hvort hægt sé að banna hvalveiðar. Spurningin er hvort við gerum það vel.
Höfundur er lögmaður.
