← globalread.info

Bæjarins besta · 10/12/2026 · 0 views

Share this story

Sambandsráðsfund UMFÍ á Ísafirði á laugardag

UMFÍ hélt 46. sambandsráðsfund sinn á Ísafirði laugardaginn 10. október og sóttu hann um 70 manns.

Öll íþróttahéruð landsins áttu fulltrúa á fundinum en hann sátu sömuleiðis svæðisfulltrúar íþróttahéraðanna, gestir, stjórn og starfsfólk.

Skúli Bragi Geirdal, varaformaður UMFÍ, og Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, stýrðu hvor sinni vinnustofunni sem báðar tengdust sameiginlegri stefnumótum ÍSÍ og UMFÍ.

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, var á meðal gesta fundarins. Hann flutti ávarp og ræddi um fjármögnun og áskoranir og lagði áherslu á mikilvægi þess að íþróttahreyfingin móti sameiginlega framtíðarsýn.

Willum vitnaði í mannréttindafrömuðinn Nelson Mandela sem sagði að íþróttir væru besta forvörnin. Verndandi þættir þeirra væru staðfestir frekar með rannsóknum. Þá yfirfærði hann niðurstöður skýrslu Golfsambandsins um áætlaðan samfélagslegan ávinning af íþróttinni.

Miðað við þær niðurstöður næmi ávinningurinn um 200 milljörðum króna. Á sama tíma hafi framlag ríkisins til íþrótta dregist saman. Sameiginleg stefnumótun nýtist til að tala einum rómi við stjórnvöld um að líta beri á framlag hins opinbera til íþrótta sem fjárfestingu frekar en útgjöld.

Fern verkefni íþrótta- og ungmennafélaga hlutu Hvatningarverðlaun UMFÍ. Verkefnin voru átak gegn nikótínpúðum, samstarfi félaga sem blés nýju lífi í sunddeild félags, sameining íþróttafélags fatlaðra við ungmennafélag til að opna börnum með áskoranir betri aðgang að íþróttaiðkun og verkefni sem tengir saman íþróttastarf, skóla og frístundir barna á aldrinum 4-8 ára.

The full article is being collected. Available text is shown for now.

Source: Bæjarins besta ↗
Share this story

Ask globalread.info

AI news & website helper
What would you like to explore?

I can find stories, explain headlines, or help you use globalread.info.

AI can make mistakes. Check the linked sources. Questions are sent to OpenAI.