← globalread.info

Bæjarins besta · 10/12/2026 · 0 views

Share this story

Stofnmat og ráðgjöf vegna brimbúts

Hafrannsóknastofnun leggur til í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið, að afli sæbjúgna (brimbúts) á átta veiðisvæðum við Ísland verði ekki meiri en 1.717 tonn árið 2027.

Þetta er um 21 % lækkun frá ráðgjöf síðasta árs. Ráðgjöf um aflamark eftir veiðisvæðum má sjá hér fyrir neðan:

Mesta lækkunin verður í Faxaflóa (svæði E) og suðursvæðinu við Austurland (svæði H) þar sem lífmassavísitalan hefur lækkað á báðum svæðum. Mið- og norðursvæðin við Austurland (svæði G og F) lækka einnig töluvert. Á miðsvæðinu (G) er lífmassavísitalan mjög sveiflukennd en hefur lækkað töluvert undanfarin tvö ár og á norðursvæðinu (F) er einnig lækkun á lífmassavísitölu undanfarin tvö ár.

Við Aðalvík (svæði A) verður einnig lækkun þar sem meðal lífmassavísitala undanfarinna tveggja ára er lægri en þriggja áranna þar á undan. Það er aðeins eitt svæði með aukningu á ráðgjöf, eða miðsvæðið á Vestfjörðum (svæði B), en þar hefur orðið aukning á lífmassa undanfarin tvö ár. Ráðgjöf fyrir svæði C og D stendur óbreytt, en engin könnun hefur farið þar fram undanfarin ár og aflinn hefur að mestu leyti verið undir ráðlögðu aflamarki.

The full article is being collected. Available text is shown for now.

Source: Bæjarins besta ↗
Share this story

Ask globalread.info

AI news & website helper
What would you like to explore?

I can find stories, explain headlines, or help you use globalread.info.

AI can make mistakes. Check the linked sources. Questions are sent to OpenAI.