← globalread.info

eidfaxi.is · 10/13/2026 · 0 views

Share this story

Árangurinn liggur fyrir en viðurkenningin fæst ekki

Story illustration

Fantasía frá Breiðstöðum aðsend mynd

Kynbótahross geta uppfyllt öll skilyrði til afkvæmaverðlauna án þess að öðlast viðurkenninguna, vegna þess að þau eru fallinn. Dæmi um slíkt er hryssan Fantasía frá Breiðstöðum sem uppfyllir nú skilyrði til heiðursverðlauna fyrir afkvæmi en getur ekki hlotið viðurkenninguna samkvæmt gildandi reglum.

Guðrún Astrid Elvarsdóttir, hrossaræktandi á Breiðstöðum, vakti nýlega athygli á þessu í hugleiðingum sem birtust á Facebook-síðu ræktunarbússins. Þar fjallar hún um hversu fágætur og eftirtektarverður árangur það er að rækta hryssu sem nær heiðursverðlaunum fyrir afkvæmi og veltir í því samhengi fyrir sér hvort rétt sé að viðurkenningin sé háð því að hryssan sé enn á lífi.

Fantasía frá Breiðstöðum er fædd árið 2003 og hlaut fimm vetra gömul 8,35 í aðaleinkunn sem klárhryssa. Hún eignaðist sex skráð afkvæmi og hafa fimm þeirra verið sýnd í kynbótadómi. Meðaltal afkvæmanna í aðaleinkunn er 8,32 og kynbótamat Fantasíu stendur nú í 117 stigum fyrir aðaleinkunn án skeiðs.Hún uppfyllir því þau skilyrði sem gerð eru til afkvæmaverðlauna. Fantasía féll hins vegar frá af slysförum aðeins 13. vetra gömul, áður en árangur afkvæma hennar lá að fullu fyrir.

Í færslu sinni lýsir Guðrún Astrid því hversu mikinn tíma, metnað og þolinmæði þurfi til að ná slíkum árangri í hrossarækt. Hún spyr hvort árangur hryssunnar eigi ekki að njóta viðurkenningar þótt hún sé fallin frá.

„Ég bara spyr mig að því hvort árangur sé ekki alltaf árangur… óháð því hvort við erum hér eða þar?“ skrifar Guðrún Astrid.

Eiðfaxi leitaði til Þorvaldar Kristjánssonar hrossaræktarráðunautar og spurði um skilyrði afkvæmaverðlauna og ástæður þess að hross þurfi að vera á lífi til að hljóta þau.

Þorvaldur segir að hryssa þurfi að eiga að lágmarki fimm dæmd afkvæmi og ná 116 stigum í aðaleinkunn kynbótamats eða aðaleinkunn án skeiðs. Hún þurfi jafnframt að vera á lífi og staðsett á Íslandi til að hljóta verðlaunin hér á landi.

“Skilyrðið um að hross séu á lífi þegar þau ná lágmörkum til afkvæmaverðlauna á sér langa sögu. Áður fyrr mættu stóðhestar og hryssur yfirleitt sjálf á stórmót með afkvæmum sínum þegar þau hlutu slíka viðurkenningu. Um 1990 varð valfrjálst hvort hrossin mættu sjálf, en krafan um að þau væru á lífi hélst óbreytt,” segir Þorvaldur. Árið 2006 var hætt að halda afkvæmasýningar hryssna á stórmótum og hafa þær síðan verið heiðraðar á haustráðstefnu fagráðs.

Þorvaldur útskýrir að tilgangur verðlaunanna hafi meðal annars verið að hvetja til notkunar verðlauna stóðhesta í ræktun og að verðlaunahross væru enn virk í ræktunarstarfinu.

Þorvaldur staðfestir að áður hafi komið upp tilvik þar sem hross hafi uppfyllt skilyrði en ekki hlotið afkvæmaverðlaun vegna þess að þau voru fallin frá. Slík dæmi séu þó ekki mörg, að minnsta kosti ekki á síðari árum.

Reglur um afkvæmaverðlaun sem skráð eru í WorldFeng eru samræmdar milli aðildarlanda FEIF. Einstök lönd geta þó einnig haft eigin reglur um afkvæmaverðlaun þar sem gerðar eru vægari kröfur.

Aðspurður um hvort ástæða sé til að endurskoða núverandi fyrirkomulag segir Þorvaldur:

„Það kemur alveg til greina finnst mér að endurskoða þessar reglur með það þá að markmiði að auka upplýsingagjöf í hrossaræktinni og opna á möguleikann að heiðra þau hross sem sannarlega hafa náð ákveðnum árangri og staðfesta hann í WorldFeng með afkvæmaorðum, hvort sem þau eru á lífi eða ekki.“

Hann bendir þó á að önnur sjónarmið eigi við um stóðhesta sem mæta á Landsmót með afkvæmahóp. Þar sé meðal annars verið að kynna ræktendum stóðhesta sem þeir geti nýtt áfram í ræktun og því mikilvægt að þeir séu enn á lífi og standi ræktendum til boða.

[email protected]

Mest lesið

Nýjasta tölublað

Áskrift

Article image
„Ótrúlegur heiður að fá þetta tækifæri“ 20. september 2026 Sjónvarp Fréttir
Article image
„Hafði aldrei látið mig dreyma um þetta“ 23. september 2026 Fréttir
Article image
Um dómaramál – hugrenningar að afloknu keppnistímabili 22. september 2026 Aðsend grein
Article image
Heiðursverðlaunahryssur á Íslandi 2026 3. október 2026 Fréttir
Article image
Kristján Árni til starfa í Hólshúsum 5. október 2026 Fréttir
Article image
Margaretehof í Svíþjóð til sölu 19. september 2026 Fréttir
Source: eidfaxi.is ↗
Share this story

Ask globalread.info

AI news & website helper
What would you like to explore?

I can find stories, explain headlines, or help you use globalread.info.

AI can make mistakes. Check the linked sources. Questions are sent to OpenAI.