Bréfin í Beru lækka

Sölustarf Ölgerðarinnar, dótturfélags Beru, var til umfjöllunar í Kveik á RÚV í gærkvöld en í síðustu viku gerði Samkeppniseftirlitið húsleit hjá fyrirtækinu.
Stjórnendur Beru brugðust strax við umfjöllun RÚV í gærkvöld með yfirlýsingu þar sem sagði meðal annars að taka ætti hluta af viðskiptaháttum Ölgerðarinnar til skoðunar en tekið var fram að þeir hefðu tíðkast lengi á íslenskum drykkjarvörumarkaði.
Í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni hafa bréfin í Beru lækkað um nærri 7 af hundraði en velta en lítil, rétt um 8 milljónir króna.
Fylgja FF7:
Ritstjórn
