Back

Íslandsmót Barna og unglingasveita 2026 fer fram á sunnudaginn

Íslandsmót barna- og unglingasveita (taflfélaga) 2026 fer fram

sunnudaginn 18. október í Miðgarði, fjölnotaíþróttahúsinu í Garðabæ.

Taflmennskan hefst kl. 13. Liðstjórar staðfesta lið sín ekki seinna en kl. 12:45.

Boðið verður upp á 3 aldursflokka:

Opinn flokkur: Sigurvegari þessa flokks er Íslandsmeistari. 7 umferðir.

B flokkur: 4.–7. bekkur – 5-7 umferðir.

C flokkur: 1.–3. bekkur – allt að 5 umferðir.

Heimilt er að keppa upp fyrir sig í flokki.

Mótið er fyrir skákmenn fædda 2011 og síðar.

Tímamörk verða 8 mínútur + 3 sek. á hvern leik.

Þátttökugjöld eru 12000 kr. fyrir A-lið og 8.000 kr. fyrir hvert lið eftir það. Hámarksgjald fyrir félag er 30.000 krónur.

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra at-skákstiga. A- og B-lið hvers félags tefla saman í fyrstu umferð séu þau í sama flokki.

Skráningarfrestur liða er föstudagurinn 15. Október kl. 15:00. Skráning verður á skak.is (Guli kassinn) eða á hlekknum Skráning

Þegar skráð lið má finna með að smella hér

Verðlaun og oddastig

Veitt verða verðlaun fyrir þrjár efstu sveitirnar í opnum flokki, B-flokki og C-flokki.

Oddastig séu sveitir jafnar að vinningum samkvæmt reglugerð um Íslandsmót barna- og unglingasveita.

Mótið fer að öðru leyti fram samkvæmt Reglugerð um Íslandsmót barna- og unglingasveita .

Vinsamlegast athugið að daginn áður, á laugardeginum, fer fram Íslandsmót ungmenna . Þetta eru tvö aðskilin mót.

The full article is being collected. Available text is shown for now.

Back
Share this story

Get the daily newsletter →

Ask globalread.info

AI news & website helper
What would you like to explore?

I can find stories, explain headlines, or help you use globalread.info.

AI can make mistakes. Check the linked sources. Questions are sent to OpenAI.