Back

Íslandsmót ungmenna (u8-u16) fer fram á laugardaginn í Miðgarði – skráningarfrestur rennur út á mogun

Story illustration

Íslandsmót ungmenna (u8-u16) fer fram laugardaginn 17. október í hinu glæsilega íþróttahúsi Miðgarði í Garðabæ.

Mótið hefst kl. 13:00 og er teflt í fimm aldursflokkum. Keppendur skulu mæta eigi síðar en kl. 12:40 og staðfesta mætingu. Krýndir verða 10 Íslandsmeistarar – efsti strákur og efsta stelpa í öllum flokkunum fimm.

Afar góð verðlaun verða í boði. Allir Íslandsmeistararnir fá frí þátttökugjöld á Reykjavíkurskákmótið 2027 sem fram fer í Hörpu 17.-23. mars 2027.

Skráning og greiðsla fer fram á Abler

8 ára og yngri (f. 2018 og síðar)

Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.

Mótið á Chess-Results (uppfært daglega)

9-10 ára (f. 2016 og 2017)

Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.

Mótið á Chess-Results (uppfært daglega)

11–12 ára (f. 2014 og 2015)

Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 2.

Mótið á Chess-Results (uppfært daglega)

13–14 ára (f. 2012 og 2013)

Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5.

Mótið á Chess-Results (uppfært daglega)

15–16 ára (f. 2010 og 2011)

Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5.

Mótið á Chess-Results (uppfært daglega)

Skráning og greiðsla þátttökugjalda

Sportabler

Skráningafrestur rennur út föstudaginn, 16. október kl. 13:00.

Með skráningu sinni staðfesta keppendur að þeir leyfi myndatökur og birtingu mynda frá mótinu á skak.is og á samfélagsmiðlum sambandsins.

Verðlaun

Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í verðlaunasætum gilda oddastig. Þó skal tefld aukakeppni um Íslandsmeistaratitla í þremur elstu aldursflokknum.

Verðlaunaafhending fer fram að keppni lokinni í hverjum flokki.

Allir Íslandsmeistarar frá frí þátttökugjöld á Reykjavíkurskákmótið 2027

Þrír efstu í öllum flokkum fá verðlaunabikar.

Frekari verðlaun verða kynnt þegar nær dregur.

Allir keppendur verða leystir út með smá glaðningi.

Þátttökugjöld eru kr. 3.000 kr. Systkinaafsláttur er 25%.

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskák- eða hraðskákstiga eftir því sem við á.

Nánar um oddastig

Allir við alla: 1. Sonneborn-Berger, 2. Innbyrðis úrslit, 3. Fjöldi sigra 4. Hlutkesti

Opnir flokkar: 1. Buchols (-1), 2. Buchols, 3. Innbyrðis úrslit, 4. Sonneborn-Berger 5. Fjöldi vinningsskáka 6. hlutkesti

Vinsamlegast athugað daginn eftir mótið fer fram Íslandsmót barna- og unglingasveita . Þetta eru tvö aðskilin mót.

Alþjóðlega Geðheilbrigðisskákmótið hefst kl. 19:30

Þing FIDE samþykkti tillögu SÍ um styttri tímamörk í kappskák

Fimm skákmenn fá styrki úr Styrktarsjóði SÍ

Þriðjudagsmót hjá TR í kvöld

Taflfélag Reykjavíkur í góðri stöðu eftir stórsigur gegn KR – Hagur Akureyringa vænkast í næstefstu deild

Spennandi í Úrvalsdeild eftir sigur Blika gegn KR – Akureyringar með mikivægan sigur á Víkingaklúbbnum í 1. deild

Þing FIDE samþykkti tillögu SÍ um styttri tímamörk í kappskák

Íslandsmót ungmenna (u8-u16) fer fram á laugardaginn í Miðgarði – skráningarfrestur...

Fimm skákmenn fá styrki úr Styrktarsjóði SÍ

Íslandsmót Barna og unglingasveita 2026 fer fram á sunnudaginn

Taflfélag Reykjavíkur í góðri stöðu eftir stórsigur gegn KR – Hagur...

Article image
Back
Share this story

Get the daily newsletter →

Ask globalread.info

AI news & website helper
What would you like to explore?

I can find stories, explain headlines, or help you use globalread.info.

AI can make mistakes. Check the linked sources. Questions are sent to OpenAI.