← globalread.info

mbl.is · 10/11/2026 · 0 views

Share this story

Vill sækja heimildarmennina til saka

Story illustration

Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, krefst þess að rannsókn verði hafin á nafnlausum heimildarmönnum sem koma fram í ísraelsku verðlaunamyndinni NAZA um stríðið á Gasa.

Myndin byggir á vitnisburði 24 ónafngreindra uppljóstrara úr ísraelska hernum sem saka herinn um að hafa drepið fjölda óbreyttra borgara á Gaza með notkun gervigreindarknúinnar skotmarkagreiningar.

„Benjamin Netanjahú forsætisráðherra fór í kvöld fram á það við yfirmann herráðs ísraelska hersins, yfirmann innlendu leyniþjónustunnar og ríkissaksóknara að hafin yrði ítarleg rannsókn á þátttakendum í myndinni „NAZA“ og að þeir yrðu sóttir til saka,“ sagði í yfirlýsingu frá skrifstofu Netanjahús.

NAZA dregur nafn sitt af hugtaki ísraelska hersins yfir mannfall óbreyttra borgara sem búist er við í loftárásum, en það er stytting á hebreska orðasambandinu „fylgitjón“.

Myndin hlaut sérstök dómnefndarverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum og var hyllt með sögulegu 25 mínútna lófataki áhorfenda sem risu úr sætum. Myndin hefur hins vegar valdið pólitísku fárviðri í Ísrael.

„Þessi mynd segir ranga, villandi og hlutdræga sögu sem rægir Ísraelsríki og herinn um allan heim,“ er haft eftir Netanjahú í yfirlýsingunni.

Hann hefur áður lýst því yfir að hann hyggist styðja lagasetningu um að svipta fólk ríkisborgararétti sem „rægir“ hermenn.

Ísraelski herinn hefur fyrir sitt leyti hafnað ásökununum í myndinni og lýst efasemdum um áreiðanleika nafnlausu heimildarmannanna.

Hernaður Ísraels á Gaza, sem hófst í hefndarskyni fyrir mannskæðar árásir Hamas 7. október 2023, hefur kostað meira en 74.000 manns lífið, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti svæðisins.

Article image
Source: mbl.is ↗
Share this story

Ask globalread.info

AI news & website helper
What would you like to explore?

I can find stories, explain headlines, or help you use globalread.info.

AI can make mistakes. Check the linked sources. Questions are sent to OpenAI.