„Má segja að fyrirtækið sé í dauðateygjunum“

Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, formaður VÁ, félags um vernd fjarðar, segir mótmæli gegn áformum um laxeldi í Seyðisfirði í dag hafa gengið vonum framar. Mótmælafundur var bæði haldinn á Austurvelli og á Seyðisfirði þar sem um 300 mótmælendur lokuðu leiðum inn í bæinn í táknrænni aðgerð.
„Þetta gekk brjálæðislega vel og það var rosalega góð mæting,“ segir Benedikta í samtali við mbl.is en hún er stödd á Seyðisfirði þar sem hún rekur gistiheimili.
Hún segir hátt í 300 heimamenn hafa tekið þátt í mótmælunum en um var að ræða eins konar gjörning þar sem hluti mótmælenda lokaði firðinum sjóleiðis á kajökum og aðrir mótmælendur lokuðu vegum inn í fjörðinn.
„Við vonum að þetta muni hafa einhverja þýðingu fyrir stjórnvöld og að þau hlusti.“
Í tilkynningu sem VÁ sendi frá sér í aðdraganda mótmælanna kemur fram að í sex ár hafi Seyðfirðingar barist gegn áformum Kaldvíkur, sem er í eigu norsku Måsøval-fjölskyldunnar, í gegnum eignarhaldsfélagið Heimstø og tengda aðila á borð við Austur Holding en Kaldvík vill hefja sjókvíaeldi í firðinum gegn vilja 75% íbúa.
„Á þeim tíma hafa verið haldnar kannanir á vilja íbúa, safnað undirskriftum, haldnir íbúafundir, sendar inn umsagnir og komið á framfæri fjölmörgum álitamálum er varða náttúruvernd, lífríki, siglingaöryggi, þjóðaröryggi og réttindi íbúa og landeigenda. Ekkert af þessu hefur hindrað stjórnvöld í að veita þeim leyfi fyrir 10 þúsund tonna eldi í firðinum,“ segir í tilkynningunni.
Segir rekstrarvandann blasa við
Spurð hvort hún hafi trú á því að stjórnvöld muni nú hlusta á vilja íbúa eftir mótmæli dagsins segist Benedikta alltaf vilja trúa því að það sé hægt að taka skref til baka.
„Rekstrarvandi fyrirtækisins Kaldvíkur er orðinn öllum ljós og þannig er orðið mjög óskiljanlegt ef þau eru að horfa á þetta út frá einhverjum hagsmunum þjóðarbúsins. Þá biðjum við frekar um að fá að skapa okkar framtíð hérna sjálf og að fá að byggja upp í takt við náttúru og lífríki.“
Fyrirtækið sé í dauðateygjunum
Spurð hvaða rekstrarvanda hún vísi í segir Benedikta: „Lánastofnanir Kaldvíkur eru búnar að setja þá á viðvörun, þeir eru búnir að tapa tugum milljarða síðustu ár. Sama dag og þetta rekstrarleyfi kom út þá voru þeir að glíma við marglyttuvanda í Reyðarfirði og voru að veiða hundruð tonna af dauðum fiski upp úr kvíunum sínum. Þetta er gríðarlega mikið fjárhagslegt tjón fyrir svona fyrirtæki.“
Þá segir Benedikta það vel sjást í rekstrarreikningum fyrirtækisins hve erfiðlega reksturinn gangi fyrir sig á Austurlandi.
„Það má segja að fyrirtækið sé í dauðateygjunum. Þetta leyfi er hins vegar gríðarleg verðmæti inn í þetta félag. Þess vegna erum við hvað mest að tala um það að vera ekki að bjarga þessu fyrirtæki til að lengja í þessum dauðateygjum heldur styðja við almannahagsmuni.“
