Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ

Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn undirrituðu fyrr í kvöld nýtt meirihlutasamstarf í Suðurnesjabæ.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá framboðunum tveimur.
Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn mynduðu fyrri meirihluti í bænum en upp úr því samstarfi slitnaði um seinustu helgi.
Svavar Grétarsson, oddviti Samfylkingar, er áfram formaður bæjarráðs en Anton Kristinn Guðmundsson, oddviti Framsóknar, er nýr forseti bæjarstjórnar. Alexandra Jóhannsdóttir mun áfram gegna embætti bæjarstjóra.
Seinustu daga einkennst af óvissu
Segir í tilkynningunni að undanfarnir dagar hafi einkennst af pólitískri óvissu í Suðurnesjabæ en með myndun nýs meirihluta vilji flokkarnir tryggja stöðugleika í stjórn sveitarfélagsins.
„Samstarfið byggir á gagnkvæmu trausti, virðingu og þeirri sameiginlegu sýn að hagsmunir íbúa Suðurnesjabæjar skuli ávallt vera í fyrirrúmi. Flokkarnir vilja leggja áherslu á gott samstarf allra kjörinna fulltrúa óháð pólitískum skoðunum og að ágreiningur um einstök málefni megi ekki standa í vegi fyrir framgangi mikilvægra verkefna,“ segir í tilkynningunni.
Segja flokkarnir að uppbygging íþróttamannvirkja, skóla- og leikskólamál, bætt þjónusta við eldri borgara og áframhaldandi uppbygging atvinnulífs verða meðal mikilvægra verkefna á kjörtímabilinu.
„Sérstök áhersla verður lögð á framtíðaruppbyggingu Miðjunnar, bættar samgöngur og umferðaröryggi, auk þess að vinna með ríkinu að uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Suðurnesjabæ. Jafnframt verður lögð áhersla á öflugt atvinnulíf, framtíð Sandgerðishafnar, fjölbreytt framboð lóða undir íbúðir og atvinnustarfsemi og að uppbygging innviða haldist í hendur við vöxt sveitarfélagsins.“
Nýjast á mbl.is »
Nýjast á mbl.is »
