← globalread.info

Vísir · 10/11/2026 · 0 views

Share this story

„Flott frammi­staða miðað við að­stæður“

Story illustration

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, hrósaði leikmönnum sínum fyrir að spila flottan fótbolta í þeim veðuraðstæðum sem veðurguðirnir buðu upp á þegar Blikar unnu Keflavík í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld.

„Frammistaðan var bara flott, sérstaklega miðað við aðstæður. Í rauninni bara hrós á bæði lið fyrir að spila flottan fótbolta í þessu veðri,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, eftir leik.

„Við vorum hugrakkir í uppspilinu okkar og leystum pressuna hjá þeim vel. Við skoruðum þrjú fín mörk og áttum þess utan góðar sóknir. Það var flott orkustig í liðinu og allir sem spiluðu skiluðu fínu framlagi,“ sagði Ólafur Ingi enn fremur.

Gylfi Berg Snæhólm lék sinn fyrsta deildarleik fyrir meistaraflokk Breiðabliks í kvöld og Ólafur Ingi var sáttur við markvörðinn unga.

„Gylfi hefur staðið sig frábærlega á æfingum hjá okkur og er lykilleikmaður í Íslandsmeistararliði Blika í 2. flokki. Það var gaman að geta gefið honum verðskuldað tækifæri. Hann var hugaður þegar hann var að spila út og leysti þau verkefni sem hann fékk afar vel,“ sagði hann um markvörð sinn.

Article image
Article image
Ólafur Ingi Skúlason var sáttur við kvöldverkið hjá leikmönnum sínum. Vísir / Diego
Source: Vísir ↗
Share this story

Ask globalread.info

AI news & website helper
What would you like to explore?

I can find stories, explain headlines, or help you use globalread.info.

AI can make mistakes. Check the linked sources. Questions are sent to OpenAI.